Thursday, January 31, 2013

Ljós og lampar



Jæjjja.. Afsakið hlé!

Mig grunaði nú að ég myndi hökta í gang með bloggið þar sem að ég er á fullu í vinnunni og skólanum og það er svolítið mikið að gera þessa dagana. Plús að þá lenti ég í því að tölvan mína bara fylltist "óvart" með grilljón myndum og ég þarf víst( að mati my man) að kaupa stærri harðan disk.. já eða ekki vera svona ógeðslega myndaóð. Held að ég velji hinn kostinn.. játs. En ég hætti ekki að hugsa um lífsins dásemdir, ónei. Ég veit að minn maður mun hlæja að þessu bloggi, þar sem að ég er með óstjórnlega mikinn áhuga á allskonar retro ljósum og tek andköf með tilþrifum ef ég sé flott ljós og hann hrekkur við :) Hér koma "nokkur" af þeim sem mér finnst með þeim flottari.

Demo ljós:
Íslensk hönnun - Mér finnst retro lagið á þeim svooo flott og birtan er svo hlý Langarí!
þessi dönsku dropaljós eru með þeim flottari að mínu mati. Ég er með eitt svona hangandi inn í eldhúsi sem ég er með í láni frá systur minni( Takk Elva Rósa, ef þú ert að lesa :)) Svo á ég 2 mini svona sem ég á ennþá eftir að finna góðan stað.
 
Þetta er flott í stórri stofu. Og er SVAKA flott í stofunni hennar Ástu vinkonu, sem var svo heppin að finan eitt svona :) Ég hefði heldur ekkert á móti því að fá mublurnar líka galdraðar inn í stofu til mín :)

Þetta er frekar lúðaleg mynd af annars rosa flotta lampanum mínum sem ég fann í IKEA fyrir möööööööörgum árum síðan, þetta sem virðist vera svart er í raun rautt og er ofboðslega fallegt þegar kveikt er á lampanum. Í alvörustunni!
Elska, elska eeeelska svona hnetti. Ég er með einn svona á tekk skenkinum mínu sem ég fann á skransölu fyrir nokkrum árum. Það er alltaf kveikt á honum og hann setur svo skemmtilegan brag og liti í stofuna.
Tom Dixon er SNILLALINGUR mikill! Þessi ljós eru svo guðdómleg að mig langar að knúsa þau.. og fægja þau svo auðvitað á eftir :)
 Tom Dixon heldur áfram að vera SNILLALINGUR og býr til þessi ljós sem toppa ALLT! Mig langar svo í þau að það er svona "fleygjasérígólfið" langar í þau! Sérstaklega þetta lengst til vinstri, það á að eiga heima hjá mér, þabarrasollis!
Tom Dixon ljós - EN ég á alveg eins nema silfurlitað sem ég fékk í Habitat forðum daga..Komu mjög fá, játs heppin ég. Svo er það ekki bara flott heldur hefur það verið skemmtilegur spegill fyrir Rebekku Sif þegar hún er á háhest á pabba sínum :)
 Þetta fékk ég gefins fyrir löngu síðan og held mikið upp á það.
Heico lamparnir eru svo dásamlegir að mig langar í næstum alla! En það gæti lookað eins og dýragarður ef ég læt nú vaða á það, en langar að bæta við bamba, einn svepp, íkorna og kanínu, já og mögulega gæs!
Bubblujólaljós! Ég er búin að eiga svona í kassa í uuuuu... ég ætla ekki að segja hvað mörg ár, án þess að nota þau. Hef vantað straumbreyti og svo hef ég ekki viljað setja þau upp fyrr en stelpan er vaxin upp úr "henda í gólfið" aldrinum. En þetta er svo æðislega gamaldags og huggulegt að einn daginn læt ég vaða.
 Kopar er málið!
 Þetta er alltaf svo hallærislega 70´s og flott
Þessa mynd fann ég af DIY síðu, sú fann mini Sony sjónvarp í bíslkúrssölu, setti ljós inn í það, tók skjáinn út og setti retro mynd í staðin. Ef ég fæ einhverntímann tíma í svona dund, og finn svona sjónvarp. Þá væri æði að búa svona til!
Þangað til næst! (P.s verið þolinmóð, ég fer bráðum í skólafrí)

Munið að það þarf að velja "Anonymous"  ef þið viljið kvitta :)

5 comments:

  1. Gvöð hvað þetta er skemmtilegar myndir. Langar svo í bambaljós
    Love mammsan

    ReplyDelete
  2. Hæ snúlla
    rosalega flott ljós, og þessi jólaljósasería er bara þvílíkt geggjuð, langarí:)
    EN ég Á Tom Dixon ljósin sem þú ert tilbúin að fleygja þér í gólfið fyrir, jebb þeiarmæn!!!!!
    lovjú
    Siffí

    ReplyDelete
  3. Love it !
    Fyndið og flott.
    Hlakka gjuðvékt til að lesa meira.
    Þú ert snillingur Sigrún Kristín.
    Pálína

    ReplyDelete
  4. Hæ krúsa!

    Mjög skemmtilegt blogg hjá þér :D Geðbiluð ljós og gaman að lesa textann við :) Ég get lánað þér straumbreyti!

    Knús, Berglind Hermannsdóttir

    ReplyDelete
  5. Takk allar þið frábæru konur!
    Mammsa.. Já mér þykir svo vænt um Bambann, þú mátt alltaf koma og knúsa hann :)

    Í alvöru Sif!?!? Ó mæ gúddness hvað þú ert heppin :)Til hamingju
    (*sagt með samanbitnum tönnum) DJÓK mér finnst frábært að þú eigir svona ljós :D Ég verð eiginlega að koma í heimsókn til að sjá þau með eigin augum.. ehaggi ;););)

    Takk Pálína,þú getur bara sjálf verið snillingur ;)..Ég elska að skoða ótrulega flottu myndirnar þínar, þú ert inspirasjón.

    Takk Berglind mín :* Ég ætla að reyna að henda inn oftar bloggi, svona þegar skólinn leyfir ;) Já, áttu straumbreyti.. yess.. Nenniru að minna mig á það næstu jól hehe :)

    ReplyDelete